Umhverfissjónarmið eru ekki lengur munaður til að tala um á hátíðis- og tyllidögum. Lög og reglur um umhverfismál leggja þungar skyldur á herðar fyrirtækja um orkunotkun, mengunarstaðla og umgengni um umhverfið. Á næstu árum verður enn bætt í af hálfu Evrópusambandsins. Allur rekstur bílaflota sem notar jarðeldsneyti verður undir smásjá yfirvalda, til að draga úr sóun og minnka mengun og gróðurhúsaáhrif. SAGA System færir því fyrirtækinu tvöfaldan ávinning. Í fyrsta lagi dregur kerfið úr sóun innan fyrirtækisins, í eldsneyti, dekkjanotkun og öllu sliti á undirvagninum. Sá árangur mun sjást strax í betri afkomu fyrirtækisins. Í öðru lagi er SAGA System afar nákvæmt skráningarkerfi sem heldur utan um allan akstur og aksturslag fyrirtækisins og getur því, þegar fram líða stundir, vottað ábyrga hegðun í umhverfismálum. Ekki er ólíklegt að slíkt þurfi til þess að komast hjá skattaálögum vegna mengunar eða umhverfissjónarmiða. Þá er ótalinn sá ávinningur sem fyrirtækið hlýtur af því að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum og að ökutækin séu fyrirtækinu til sóma í umferðinni. Hjá þeim fyrirtækjum sem tekið hafa SAGA DRIVING í notkun hefur tjónum fækkað umtalsvert og þar af leiðandi slysum líka.
Tengjast SAGAsystem