SAGAsystem hefur þróað nýja vöru fyrir Noregsmarkað. Á norsku ber hún heitið Kjørebok eða akstursdagbók og kemur í stað hefðbundinna akstursdagbóka sem standa þarf skil á þegar þeginn er ökutækjastyrkur frá fyrirtækjum. Í stað þess að fylla út dagbókina handvirkt er nú á einfaldan hátt hægt að halda utan um akstur með rafrænum hætti.
Rafræn akstursdagbók opnar á margvíslega möguleika í notkun; starfsmenn fyrirtækja geta t.a.m. skilgreint vinnuakstur frá einkaakstri og á einfaldan hátt rukkað vinnuveitendur fyrir akstur. Jafnframt geta starfsmenn sem hafa leyfi til að sinna einkaerindum á fyrirtækjabílum auðveldlega skilgreint einkaakstur frá fyrirtækisakstri. Hvimleið gagnavinnsla vegna ökutækjastyrkja mun nú heyra sögunni til þar sem dagbækurnar verða lagaðar að regluverki skattayfirvalda í hverju landi. Innan Noregs er mikil eftirspurn eftir vörunni og stefnt er að markaðssetningu víðar.
Tengjast SAGAsystem