Áhugi tækni samfélagsins á SAGAsystem er að aukast jafnt og þétt. Útvarpsþátturinn Tilraunaglasið á Rás 1. Fjallaði um SAGAsystem í þætti sínum við Sigurð Inga Friðleifsson Framkvæmdastjóri Orkuseturs hefur lengi stuðst við tækni SAGAsystem í sínum rannsóknum og verkefnum. meira
SAGAsystem hefur þróað nýja vöru fyrir Noregsmarkað. Á norsku ber hún heitið Kjørebok eða akstursdagbók og kemur í stað hefðbundinna akstursdagbóka sem standa þarf skil á þegar þeginn er ökutækjastyrkur frá fyrirtækjum. Í stað þess að fylla út dagbókina handvirkt er nú á einfaldan hátt hægt að halda utan um akstur með rafrænum hætti.
Áralöng reynsla yfir 150 fyrirtækja sýnir að notkun á SAGAsystem getur minnkað eldsneytis- og viðhaldskostnað þeirra um 15%, ásamt því að lækka tjónatíðni og þar af leiðandi tryggingariðgjöld. meira
Norska rútufyrirtækið Tide Buss bættist nýlega í vaxandi hóp viðskiptavina SAGAsystem. Forsvarsmenn Tide Buss hafa leitað logandi ljósi að flotastýringarkerfi síðastliðin misseri og eftir ítarlegar prófanir varð niðurstaða þeirra sú að með notkun SAGAsystem nást markmið þeirra um eldsneytissparnað. Stjórnendur Tide Buss fullyrða aðSAGAsystem sé besta alhliða flotastýringarkerfi sem þeir hafi komist í tæri við ásamt því að vera umhverfisvænna en önnur kerfi.
Tugmilljóna sparnaður í rekstri og allt að 60% lægri árekstrartíðni með notkun fyrirtækja á SAGAsystem ökuritum voru til umfjöllunar í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. meira
Hér á landi er unnið kraftmikið starf við þróun rafbíla og SAGAsystem kemur víða að nýsköpun á sviðinu. Kerfi fyrirtækisins hafa gefið góða raun við upplýsingasöfnun og rannsóknir á vettvangi. Fullkomnasti rafbíll landsins af gerðinni Tesla Roadster sem nýsköpunarfyrirtækið 2012 flutti til landsins er t.a.m. tengdur SAGAsystem. meira
Fréttastofa Stöðvar tvö fjallaði í dag um kosti SAGAsystem ökurita sem öryggistækis í óbyggðum. meira
Enginn hefur farið varhluta af þeim efnahagslegu þrengingum sem íslenskt viðskiptalíf gengur nú í gegnum og SAGAsystem er ekki undanskilið. Nokkrir viðskiptavina okkar hafa því miður farið í þrot og verkefnum hefur fækkað hjá öðrum. Þegar svo hart er í ári er því ánægjulegt að segja frá að viðskiptavinum okkar fari þó fjölgandi. meira
Eitt stærsta rútufyrirtæki Norðurlanda sparar háar fjárhæðir í eldsneytiskaupum, minnkar tjónatíðni og eykur ánægju farþega með íslenskum hátæknibúnaði Íslenska flotastýringarkerfið SAGAsystem hefur verið selt í tæplega eitthundrað nýja strætisvagna sem eitt stærsta rútufyrirtæki Norðurlanda tekur í notkun í Noregi nú í upphafi árs 2010. Samningar eru í undirbúningi um að selja SAGA kerfið í alla þrettánhundruð farþegabíla fyrirtækisins í Noregi og Danmörku en slíkt myndi nærri tvöfalda veltu þessa íslenska hátæknifyrirtækis. meira
Eimskip innanlands hefur hafið samstarf við hátæknifyrirtækin ND á Íslandi og Controlant um innleiðingu á kælivöktun í bílaflotann sinn. Kælivöktunin er sameiginleg afurð fyrirtækjanna ND á Íslandi sem rekur flotastýringakerfið SAGAsystem og Controlant sem á dögunum hlaut nýsköpunarverðlaunin Gulleggið frá Innovit. meira
Tengjast SAGAsystem