FUEL MONITOR ber saman gögn frá olíufélögunum, staðsetningar og notkun bílsins. Tryggir að kort og bíll fari alltaf saman og að eyðsla sé í samræmi við bíltegund og notkun.
SAGAsystem er nú tengt gagnagrunnum allra olíufélagana. Hægt er að nálgast upplýsingar um notkun eldsneytiskorta. Með samanburði við ýmis gögn sem kerfið er með fyrir koma mikil samlegðaráhrif í ljós.
SAGAsystem EYÐSLA er tengt tölvukerfi olíufélaganna og fær jafnóðum upplýsingar um eldsneytismagn sem dælt er á hvert farartæki. Með því að bera saman ekna kílómetra samkvæmt SAGA Fleet og hversu mikið eldsneyti er keypt á bílinn er reiknuð eldsneytiseyðsla bílsins. Ef frávik er frá meðaleyðslu lætur kerfið vita. Á þennan hátt geta fyrirtæki fylgst með eldsneytiseyðslu hvers farartækis og flotans í heild og borið saman einstök farartæki eða deildir innan fyrirtækisins. Fyrirtæki geta jafnframt nýtt upplýsingarnar til þess að bera saman eyðslu og bíltegundir. Með þessari þjónustu hafa mörg fyrirtæki náð að stöðva umtalsverða sóun í rekstri bíla- og farartækja flotans.
Tengjast SAGAsystem